Gögn
Í þessum kafla ætlum við að kynnast hinum ýmsu birtingarmyndum gagna (e. data). Netöryggi felur í sér að verja gögn og upplýsingar, og því er mikilvægt að kynnast því hvernig þessi gögn eru geymd, hvernig þau líta út og hvernig þau eru skipulögð.
Við byrjum á því að fara aðeins yfir ólík talnakerfi, kynnumst svo tóli sem kallast CyberChef og notum það til að vinna með gögn á hinum ýmsu formum, allt frá dulkóðuðum texta yfir í gallaða íslenska stafi!
Vertu óhræddur/óhrædd
Athugaðu að þessi kafli er hugsaður sem yfirlit yfir framsetningu gagna og hann leggur grunninn að ýmsu sem kemur síðar í bókinni, en það verður ekki alltaf kafað djúpt í nákvæmar tæknilegar útfærslur. Þú þarft því alls ekki að örvænta þótt eitthvað kunni að vera tormelt eða þú skiljir ekki fullkomlega hvernig ákveðnir hlutir virka strax. Bara halda áfram!