Um hakkaraskólann
Hakkaraskólinn er kennsluefni í netöryggi fyrir algjöra byrjendur. Skólinn samanstendur af kennsluefni auk gagnvirkra verkefna.
Fyrir hverja er þetta?
Þetta kennsluefni er hannað fyrir byrjendur og það eina sem við þurfum til að hefjast handa er tölva, nettenging og forvitni. Við gerum ekki ráð fyrir neinni fyrri þekkingu á forritun eða netkerfum.
Tölvunarfræði og netöryggi geta stundum verið tæknilega krefjandi, og það er fullkomlega eðlilegt að skilja ekki allt í fyrsta lestri. Efnið í skólanum er misflókið og stundum geta heilir kaflar eða ákveðin verkefni reynst bæði erfið og tormelt. Ef við festumst einhvers staðar eða finnst efnið of þungt, þá er minnsta mál að hoppa yfir þann hluta í bili og skoða eitthvað annað skemmtilegt í bókinni. Þekking á þessu sviði byggist upp smátt og smátt og það er enginn sem lærir þetta allt í einum yfirlestri. Munum bara að gefast ekki upp!
Efnistök
Í kaflanum Grunnatriði byggjum við upp þann tæknilega grunn sem er nauðsynlegur til að ná góðum tökum á netöryggisflokkunum. Hver kafli í kjölfarið er tileinkaður ákveðnum veikleikaflokki.
Notkun gervigreindar
Gervigreind er öflugt og gagnlegt tól þegar kemur að því að læra nýja hluti. Við hvetjum til þess að gervigreind sé nýtt til að spyrja spurninga, kryfja flókin hugtök til mergjar eða öðlast dýpri skilning á þeim tæknilegu áskorunum sem við fáumst við í bókinni. Ef við skiljum ekki ákveðna skipun, forritunarkóða eða hugtök, getur gervigreindin reynst frábær aðstoðarkennari.
Hins vegar er mikilvægt að hafa í huga að það að leysa verkefni í blindni með hjálp gervigreindar hjálpar engum. Ef við afritum einfaldlega verkefnalýsingu og límum svarið beint inn sem lausn, þá erum við ekki að byggja upp okkar eigin færni. Markmiðið með öllu kennsluefninu er fyrst og fremst að við öðlumst þekkingu og raunverulega færni. Gervigreindin getur svo sannarlega stutt við það ferli, en hún lærir hlutina því miður ekkert fyrir okkur.
Stuðningur
Þróun Hakkaraskólans var fjármögnuð að hluta af Evrópusambandinu með styrk sem veittur var í gegnum Eyvöru – hæfnisetur netöryggis á Íslandi (NCC-IS).